Um Flugkort
About Flugkort
Hvar má fljúga dróna á Íslandi, hvenær og í hvaða flokki.
Where you may fly a drone in Iceland, when, and in which category.
Hvað þetta erWhat this is
Flugkort safnar á eitt kort þeim reglum og takmörkunum sem gilda um drónaflug í opnum flokki (A1, A2, A3): bannsvæðum Samgöngustofu, tímabundnum bönnum, NOTAM, loftrými, friðlýstum svæðum og þéttbýli. Þú getur athugað stað, teiknað flugleið eða svæði, fengið samantekt og prentað flugáætlun eða kort.
Flugkort puts the rules and restrictions for drone flying in the open category (A1, A2, A3) on one map: Samgöngustofa’s no-fly zones, temporary bans, NOTAMs, airspace, protected areas and built-up areas. You can check a spot, draw a route or an area, get a briefing, and print a flight plan or a chart.
Gögnin eru sótt reglulega frá þeim sem gefa þau út (sjá hér að neðan); reglurnar sjálfar eru skráðar eftir síðum stofnananna og geta breyst.
The data is fetched regularly from those who publish it (see below); the rules themselves are written down from the agencies’ own pages and can change.
Reglur og takmarkanirRules and restrictions
- Samgöngustofa Drónakort: bannsvæði við flugvelli, mikilvæga innviði, lögreglustöðvar o.fl., og tímabundin drónabönn. The drone map: no-fly zones round airports, critical infrastructure, police stations and more, and temporary drone bans. island.is/en/drone-map
- Isavia ANS NOTAM, uppfærð á 10 mínútna fresti. Flugvallakortin eru endurteiknuð og einfölduð eftir flugvallakortum í AIP Iceland. NOTAMs, refreshed every 10 minutes. The aerodrome charts are redrawn and simplified from the aerodrome charts in AIP Iceland. avians.is · eaip.avians.is
- openAIP Loftrými (CTR, ATZ, bann-, hafta- og hættusvæði) og flugvellir, úr AIP Iceland. Airspace (CTR, ATZ, prohibited, restricted and danger areas) and aerodromes, from AIP Iceland. openaip.net · CC BY-NC 4.0
- Náttúruverndarstofnun Friðlýst svæði og reglur um dróna á þeim. Protected areas and their drone rules. nattura.is
- Vatnajökulsþjóðgarður Svæði með sérreglum (Skaftafell, Jökulsárgljúfur, Askja o.fl.). Areas with their own rules (Skaftafell, Jökulsárgljúfur, Askja and others). vatnajokulsthjodgardur.is
- HMS Landnotkun í aðalskipulagi sveitarfélaga: íbúðar-, verslunar-, iðnaðar- og útivistarsvæði, fyrir 150 m regluna í A3. Land use in municipal plans: residential, commercial, industrial and recreational areas, for the 150 m rule in A3. skipulagsgatt.is
KortiðThe map
- OpenStreetMap Grunnkort: © OpenStreetMap-þátttakendur, í vigurflísum OpenMapTiles, frá OpenFreeMap. Base map: © OpenStreetMap contributors, as OpenMapTiles vector tiles, from OpenFreeMap. © OpenStreetMap (ODbL) · © OpenMapTiles · OpenFreeMap
- ÍslandsDEM v1.0 Hæðarlíkan Íslands: landhæð, hæðarlínur á prentuðum kortum og hæð yfir jörðu. The elevation model of Iceland: ground heights, the contours on printed charts, and heights above ground. © Náttúrufræðistofnun, Landmælingar Íslands · CC BY 4.0
- Mapterhorn Varaleið fyrir hæðargögn. Fallback elevation data. mapterhorn.com · Copernicus DEM © DLR e.V. 2010–2014 and © Airbus Defence and Space GmbH 2014–2018, provided under COPERNICUS by the European Union and ESA
Lifandi gögnLive data
- Flugumferð Air traffic ADS-B frá þremur opnum netum, sameinað. ADS-B from three open networks, merged. adsb.lol (ODbL) · adsb.fi · The OpenSky Network
- METAR Loftþrýstingur á flugvöllum, til að breyta þrýstingshæð flugvéla í hæð. Aerodrome pressure, to turn aircraft pressure altitudes into altitudes. aviationweather.gov (NOAA)
- Veður Weather Vindur, hiti, skyggni og úrkoma. Wind, temperature, visibility and precipitation. Open-Meteo · CC BY 4.0
- Segulvirkni Geomagnetic activity Kp-stuðull, sem getur truflað GNSS og áttavita. The Kp index, which can upset GNSS and compasses. NOAA Space Weather Prediction Center
Hugbúnaður og leturSoftware and type
- Kort Map MapLibre GL JS (BSD-3-Clause) · maplibre-contour (BSD-3-Clause) · PMTiles (BSD-3-Clause) · Turf (MIT) · polylabel (ISC)
- Prentun Printing Typst (Apache-2.0), via typst.ts (Apache-2.0) · qrcode-generator (MIT)
- Viðmót Interface Preact (MIT) · Radix UI (MIT) · pure-web-bottom-sheet (MIT) · SunCalc (BSD-2-Clause)
- Letur Type Inter · JetBrains Mono · Noto Sans (SIL Open Font License 1.1)
PersónuverndPrivacy
Engir aðgangar, engar vafrakökur, engin rakning eða vefmælingar. Stillingar og flugáætlanir eru geymdar í vafranum þínum; staðsetningin þín er aðeins notuð í tækinu. Vafrinn sækir kortaflísar og veðurgögn beint frá OpenFreeMap, Open-Meteo og NOAA, sem sjá því IP-tölu þína; annað kemur frá þessari síðu.
No accounts, no cookies, no tracking or analytics. Settings and flight plans are kept in your browser; your location is only used on your device. Your browser fetches map tiles and weather directly from OpenFreeMap, Open-Meteo and NOAA, which therefore see your IP address; everything else comes from this site.
HöfundurMade by
Valtýr Örn Kjartansson gerði Flugkort í frístundum. Það er ekki á vegum Samgöngustofu, Isavia eða annarra stofnana sem nefndar eru hér.
Flugkort is a hobby project by Valtýr Örn Kjartansson. It isn’t affiliated with Samgöngustofa, Isavia or any of the other bodies named here.